top of page
Search
  • Writer's pictureGuðrún Pálína Karlsdóttir

Kynning

Hæhæ Guðrún Pálína Karlsdóttir heiti ég og varð 22 ára 27.febrúar. Ég er nýbökuð tvíburamamma og ég mun tala um allt tengt því í öðrum blogum. Mín áhugamál eru mörg en þau sem eru í top 5 eru söngur, myndlist, förðun, tónlist og handavinna. Ég vinn á leikskóla en er núna í fæðingarorlofi. Ég útskrifaðist úr FS(Fjölbrautaskóla Suðurnesja) 23.des 2017 sem stúdent af myndlistarbraut. Ég er einnig förðunarfræðingur, útskrifaðist úr Mask makeup Academy 2018.

Mig langar að deila mínu lífi og áhugamálum. Mér finnst mjög gaman að fylgast með lífi annarra á samfélagsmiðlum. Ég get eitt heilum degi að horfa á myndbönd á Youtube, story á Instagram og lesa blog. Þess vegna vil ég prufa að gera það líka. Ég hlakka til þess að deila mínu lífi, áhugamálum, reynslum, álitum og fleira hérna inná. Einnig er markmiðið að setja fleira skemmtilegt í story á Instagram hjá mér og jafn vel gera fleiri myndbönd fyrir Youtube.

Ég ætla að enda þetta hér og við heyrumst í næsta bloggi.



Lokamoli:


Gerðu það sem að þig langar að gera.

ekki bíða,

gerðu það núna,

engar afsakanir.

Þú getur það!


-Guðrún Pálína


228 views0 comments

Recent Posts

See All
Post: Blog2_Post
bottom of page